Upplýsingar til þátttakenda
Hér má finna svör við helstu spurningum barna vegna þátttöku þeirra á barnaþing.
Þarf ég að undirbúa mig eitthvað fyrir þingið?
- Þú þarft ekkert að undirbúa þig sérstaklega fyrir þingið. Við viljum að þú mætir á Barnaþingið nákvæmlega eins og þú ert.
- Fyrir þá sem vilja verður þó í boði að taka þátt í undirbúningsfundum og verkefnum í gegnum internetið. Öll undirbúningsvinna er létt, skemmtileg og valfrjáls.
Kostar eitthvað að taka þátt í þinginu?
-
Nei, það kostar ekkert að taka þátt í þinginu.
Fæ ég borgað fyrir að taka þátt í þinginu?
-
Nei, allir þátttakendur þingsins eru gestir en fá ekki greitt fyrir þátttöku. Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal fyrir þátttöku sína á þinginu.
Er skyldumæting?
-
Nei, það er ekki skyldumæting á þingið en það væri afskaplega gaman að fá þig.
Mega foreldrar mínir koma með mér á þingið?
-
Nei, foreldrum er ekki boðið með á þingið. Börn sem þurfa auka stuðning fá hann í samráði við foreldra.
Má ég taka vin með á þingið?
-
Nei, því miður er þingið bara fyrir þá sem fengu boð um að mæta.
Hvar er þingið haldið?
-
Næsta barnaþing er haldið 16. - 17. nóvember 2023 í Hörpu.
Hvernig kemst ég á staðinn?
-
Harpa er í miðbæ Reykjavíkur og þangað er auðvelt að komast á einkabíl. Einnig er hægt að taka strætó og stoppar strætó nr. 3 beint fyrir utan Hörpu og svo er stutt á Lækjartorg. Frekari upplýsingar eru að finna á strætó.is
-
Í boði er ferðastyrkur fyrir þau börn sem koma lengst að og verður opnað fyrir umsóknir þegar nær dregur barnaþingi.
Fæ ég eitthvað að borða á þinginu?
-
Á fimmtudeginum er stuttur dagur en boðið er upp á brauðmeti og ávexti þegar þú mætir á svæðið.
-
Á föstudeginum er mælt með að þú fáir þér morgunmat áður en þú mætir á þingið en boðið verður upp á hádegismat og millimál á meðan á þinginu stendur. Ekki er ástæða til að koma með nesti með sér en ef þú vilt getur þú haft með þér vatnsbrúsa.
Hvernig fötum á ég að mæta í?
-
Mikilvægt er að þú mætir í fötum sem þér líður vel í. Gott er að hafa í huga að klæða sig snyrtilega.
Hvernig er aðgengi fyrir hreyfihamlaða?
-
Aðgengi er almennt mjög gott í Hörpu. Hægt er að lesa sér til um það á heimasíðunni https://harpa.is/harpa/adkoma.
-
Gott væri ef tilkynnt væri til skrifstofu umboðsmanns barna um sérstök atriði svo hægt sé að tryggja aðgengi allra.
Ég er með fæðuofnæmi, hvernig læt ég vita af því?
-
Allir þátttakendur á þinginu þurfa að skrá sig á þingið í gegnum Sportabler, þar óskum við eftir öllum upplýsingum varðandi ofnæmi, óþol og slíkt. Einnig er hægt að senda okkur tölvupóst á barnathing@barn.is eða hringja á skrifstofu umboðsmanns barna í síma 552-8999.
Á hvaða tungumáli fer þingið fram?
-
Þingið fer fram á íslensku.
-
Boðið verður uppá táknmálstúlkun eftir þörfum.
Hvað er þingið lengi?
-
Fimmtudaginn 16. nóvember, verður boðið upp á heimsókn fyrir barnaþingmenn í Alþingi við Austurvöll, tímasetning verður auglýst síðar.
Föstudaginn 17. nóvember er mæting í Hörpu klukkan 8:30. Dagskrá hefst klukkan 09:00 og lýkur klukkan 16:00.
-
Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.
Fæ ég frí í skólanum til að koma á barnaþing?
-
Í samráði við forsjáraðila og skóla verður leitast eftir því að börn fái frí til þess að taka þátt í þinginu.
Verða skemmtiatriði?
-
Já það verða skemmtiatriði sem þátttakendur þingsins taka þátt í að velja.
Get ég hætt við að koma ef ég skrái mig?
-
Já þú getur hætt við. Ef barn hættir við eða forfallast þarf að tilkynna það með því að senda tölvupóst á barnathing@barn.is, hringja á skrifstofu umboðsmanns barna í síma 552-8999 eða breyta skráningunni í Sportabler.
Af hverju er mér boðið á barnaþing?
-
Þátttakendur á barnaþing eru valdir af tilviljun. Umboðsmaður barna fékk aðstoð frá þjóðskrá til að draga út einstaklinga á aldrinum 11-15 ára sem boðið er á barnaþing.
Ef þú eða foreldrar/forsjáraðilar þínir eruð með einhverjar spurningar eða vangaveltur varðandi þingið þá endilega hafið samband símleiðis á skrifstofu umboðsmanns barna í síma 552-8999 eða með því að senda tölvupóst á barnathing@barn.is.