Barnaþing 2019
Fyrsta barnaþingið var haldið í Hörpu 21. og 22. nóvember árið 2019. Þingið var haldið með þjóðfundarformi og fengu börnin fullt frelsi til þess að koma sínum áhersluatriðum á framfæri. Send voru boðsbréf til 500 barna á Íslandi en samtals voru 153 börn skráð á þingið. Ákveðið var að velja börn á þingið með slembivali úr Þjóðskrá til þess að fá til þátttöku fjölbreyttan hóp barna frá öllu landinu. Auk þeirra var börnum sem tilheyra ákveðnum minnihlutahópum sérstaklega boðið að taka þátt. Með þessari aðferð fékkst hópur barna sem endurspeglar margbreytileika barna í landinu.
Fyrir barnaþingið óskaði umboðsmaður eftir borðstjórum á aldrinum 18 - 30 ára. Ríkar kröfur voru gerðar til umsækjenda um reynslu af starfi með börnum og ungu fólki. Haldnir voru tveir fræðslufundir fyrir barnaþingið með borðstjórum þar sem þeir fengu þjálfun og upplýsingar um sitt hlutverk.
Undirbúningur barnaþingmanna fór fram á netinu í gegnum vefkerfið Basecamp. Þar gátu þau nálgast fræðslu um helstu áhersluatriði Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og skipulag þingsins. Auk þess sem þau gátu kynnst hvert öðru. Fjórir undirbúningsfundir voru haldnir fyrir barnaþingið en auk þeirra voru átta verkefni lögð fyrir börnin. Þátttaka í verkefnum og á fundum var valfrjáls.
Núna fáum við rödd í samfélaginu, höfum áhrif innan þess, og fáum að hjálpa til við að bæta það sem þarf. - Þátttakandi á barnaþingi 2019
Á næsta barnaþingi sem haldið verður árið 2021 mun sérstaklega vera gerð grein fyrir því með hvaða hætti sjónarmið barnaþingmanna, frá barnaþingi 2019, hafa haft áhrif á stefnumótun stjórnvalda.
Hér má nálgast dagskrá barnaþings 2019 í Hörpu.
Fjölmiðlaumfjöllun um barnaþing
Töluverð fjölmiðlaumfjöllun var um barnaþingið 2019, sjá lista hér fyrir neðan.
- Viðtal við Salvöru Nordal í Fréttablaðinu 21. nóvember 2019
- Vel heppnað barnaþing í Hörpu
- 150 börn sátu barnaþing
- Fréttabörn segja að vel hafi tekist til
- Þá kannski heyrir Guðni forseti
- Katrín: „Börn og ungmenni hafa oft aðra sýn á samfélagið en eldri kynslóðir“
- Ætlaði að verða handboltakappi en endaði sem forseti
- Glæsilegt tveggja daga barnaþing sett í Hörpu
- Barnaþing skrifar nýjan kafla í réttindamálum barna
- "Grimm framtíð" viðtöl við þátttakendur barnaþings
- Víglínan - viðtal við Salvöru Nordal og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur
- Raunveruleg og sýnileg áhrif - viðtal við Salvöru Nordal
- Börn taki meiri þátt í stefnumótun
Teikningar frá barnaþingi 2019
Elín Elísabet teiknari fangaði augnablik barnaþings 2019 með sínum stórkostlegu teikningum. Teikningarnar er hægt að skoða í heild sinni hér. Nánari upplýsingar um Elínu Elísabetu er að finna á vefsíðu hennar hér.
Myndband frá barnaþingi
Niðurstöður barnaþings
Niðurstöður barnaþings voru afhentar ráðherrum þann 8. maí 2020.
Skýrsla með niðurstöðum barnaþings.