Klámnotkun og kynlífshegðun unglinga - Opinn fyrirlestur
Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands stendur fyrir opinberum fyrirlestri fimmtudaginn 19. október í stofu 132 í Öskju kl. 15.00. Guðbjörg Hildur Kolbeins, doktor í fjölmiðlafræði, mun þar flytja fyrirlesturinn Klámnotkun og kynlífshegðun unglinga: Eru allir krakkar á kafi í klámi?
Að beiðni norrænu ráðherranefndarinnar var samnorræn rannsókn á klámnotkun ungs fólks og viðhorfum þess til kláms og kynlífs framkvæmd á síðasta ári. Niðurstöðurnar voru kynntar á ráðstefnu í Ósló í september og hafa fjölmiðlar, sem fjallað hafa um rannsóknina, iðulega farið rangt með staðreyndir. Hér á landi tóku 323 unglingar á aldrinum 14 til 18 ára þátt í rannsókninni . Verða helstu niðurstöður kynntar í erindinu, og verður m.a. fjallað um tengsl klámnotkunar við kynlífshegðun unglinga.
Guðbjörg Hildur Kolbeins er doktor í fjölmiðlafræði og hefur undanfarin ár m.a. kennt námskeið um áhrif kláms og ofbeldis við Háskóla Íslands