Heimsókn í Reykjanesbæ
Umboðsmaður barna heimsótti í gær, 30. október, Reykjanesbæ ásamt starfsfólki sínu til þess að kynna sér þjónustu við börn og ungmenni í bæjarfélaginu.
Starfsfólk Manngildissviðs Reykjanesbæjar sem er fræðslusvið, fjölskyldu- og félagsþjónusta og menningar-, íþrótta- og tómstundasvið, kynnti þjónustu bæjarfélagsins í málaflokknum og ýmis verkefni s.s. SOS- hjálp fyrir foreldra, jákvæða barnavernd og verkefni nýs forvarnarfulltrúa Heru Óskar Einarsdóttur. Þar á eftir var leikskólinn Tjarnarsel heimsóttur.
Heimsóknin var afar vel heppnuð og þakkar umboðsmaður starfsfólki Reykjanesbæjar góðar móttökur. Greinilegt er að í Reykjanesbæ er lögð rík áhersla á að tryggja börnum, unglingum og fjölskyldum þeirra sem vænlegust skilyrði.