Fyrirsagnalisti
Herferð Evrópuráðsins - börn og ofbeldi.
Í júní sl. hófst á vegum Evrópuráðsins átak gegn ofbeldi á börnum. Í fréttatilkynningu Evrópuráðsins segir að markmiðið sé að koma í veg fyrir ofbeldi gegn börnum, að stuðla að jákvæðu uppeldi barna og að vekja athygli á réttindum barna um alla Evrópu.
Samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eiga börn rétt á vernd gegn hvers kyns ofbeldi s.s. líkamlegu, andlegu og kynferðislegu og gegn vanrækslu. Börn verða fyrir margvíslegu ofbeldi á heimili sínu, í skólanum og á götum úti. Ofbeldi á börnum er jafnvel réttlætt af yfirvöldum, sem tæki til ögunar og uppeldis.
Jákvæð samvera með fjölskyldunni skapar börnum öryggi. Þá hafa rannsóknir sýnt að jákvæð samvera foreldra og barna hefur mikið forvarnargildi fyrir börn og ungmenni.
Íslendingar standa nú á miklum tímamótum sem hafa víðtæk áhrif á unga sem aldna. Mikilvægt er að huga sérstaklega að velferð barna og unglinga á þessum tímum.
Félags- og tryggingamálaráðuneytið, Jafnréttisstofa, Reykjavíkurborg, Akureyrarbær, Hafnarfjarðarbær, Kópavogsbær og Mosfellsbær hafa skrifað undir samstarfssamning um þróunarverkefnið "Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum".
Þann 2. október sl. var opnuð heimasíða UmMig.is en heimasíðan er ætluð börnum, unglingum og foreldrum þeirra. Á heimasíðunni er að finna upplýsingar um flest allt sem viðkemur líkamlegri-, andlegri-, og félagslegri heilsu barna og unglinga.
Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn verður haldinn 10. október nk. og er yfirskrift dagsins að þessu sinni „Hlúðu vel að því sem þér þykir vænt um“. Verður athyglinni einkum beint að ungu fólki.
Reglulega berast umboðsmanni barna athugasemdir vegna kvikmynda sem verið er að sýna í kvikmyndahúsum, m.a. vegna þess að foreldrar/forráðamenn telja myndina ekki við hæfi fyrir börn í þeim aldurshópi sem auglýst er að myndin sé ætluð.
Reglulega berast umboðsmanni barna athugasemdir vegna langrar viðveru barna í leik- og grunnskólum. Meðal annars hefur borist ályktun frá Kennarasambandi Íslands þar sem því er beint til umboðsmanns barna að koma á samræðum í samfélaginu um hvernig hagsmunum barna er best fyrir komið. Starfsdagur barna (skóli, vistun, tómstundir, heimanám) hafi lengst óhóflega mikið þannig að grípa þurfi til aðgerða svo þau fái notið bernsku sinnar og meiri samskipta við foreldra.