Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Fjármál

Lögræði
Hugtök
Hverju mega börn ráðstafa sjálf?
Skylda lögráðamanna
Hlutverk yfirlögráðenda
Börn og fjármálastofnanir
Mega börn skulda?
Kaup og sala barna á eignum
Hvað er til ráða?
Ábyrgð hinna fullorðnu

Hægt er að smella á kaflaheitin til að komast í einstaka kafla.
Með því að smella á kaflaheiti í texta er hægt að komast aftur efst á síðu.

Lögræði
Samkvæmt lögræðislögum nr. 71/1997 verða börn lögráða við 18 aldur, nema lög mæli á annan veg fyrir.  Eina undantekningin er ef unglingar gifta sig fyrir þann aldur.  Með lögræði er átt við sjálfræði og fjárræði en í því felst að við 18 ára aldur ráða börn ein fé sínu og persónulegum högum.

Fram að þessu tímamarki eru börn því ófjárráða og er það meginregla lögræðislaganna að ófjárráða ræður ekki fé sínu. Foreldrar barns, sem fara með forsjá þess, eða aðrir þeir sem falin hefur verið forsjá barns samkvæmt barnalögum nr. 76/2003 fara með fjárhald þess samkvæmt 2. mgr. 51. gr. lögræðislaga. Þeir eru svokallaðir lögráðamenn barns.  Ef fjárhaldsmenn eru tveir fara þeir saman með fjárhaldið en þó er mögulegt að annar veiti hinum umboð til þess að fara einn með fjárhaldið.

Hugtök
Í lögræðislögunum er gerður greinarmunur á fjármunum barna eftir því hvernig þeir eru tilkomnir og gilda mismunandi reglur um meðferð þeirra.   

  • Sjálfsaflafé: Það fé sem barnið hefur sjálft unnið sér inn með persónulegri vinnu sinni.
  • Gjafafé: Það fé sem barnið hefur fengið að gjöf, hvort sem um lífgjöf eða dánargjöf er að ræða.
  • Annað fé: Aðrir fjármunir en að ofan greinir s.s. arfur, bótagreiðslur o.fl.
  • Lögráðamaður:  Sá sem fer með lögformlegt fyrirsvar barns.  Yfirleitt eru foreldrar eða þeir sem fara með forsjá barns lögráðamenn barna sinna.  Ef foreldrar eru látnir, ekki hæfir eða geta einhverra hluta vegna ekki sinnt þessari skyldu sinni getur sýslumaður skipað barni annan lögráðamann.  Meginreglan er því að forsjá og lögráð fari saman en þó er undantekningar frá því.
  • Yfirlögráðandi: Sýslumenn eru yfirlögráðendur hver í sínu umdæmi. Hlutverk yfirlögráðanda er að hafa eftirlit með fjárhaldi lögráðamanna og er samþykki þeirra áskilið til ýmissa ráðstafana með fjármuni ófjárráða barna.

Hverju mega börn ráðstafa sjálf?
Frá þeirri meginreglu að ófjárráða megi ekki ráða fé sínu eru gerðar undanþágur. Í 75. gr. lögræðislaga nr. 71/1997 segir að ófjárráða maður ráði sjálfur sjálfsaflafé sínu, gjafafé sínu og því fé sem lögráðamaður hefur látið hann fá til ráðstöfunar:

Ráðstöfunarréttur ófjárráða manns.
 75. gr. 1. Ófjárráða maður ræður ekki fé sínu nema lög mæli á annan veg.
 2. Ófjárráða maður ræður sjálfur sjálfsaflafé sínu sem hann hefur þegar unnið fyrir. Maður, sem sviptur hefur verið fjárræði, ræður þó aðeins því sjálfsaflafé sem hann hefur unnið sér inn eftir að úrskurður gekk um sviptingu fjárræðis.
 3. Ófjárráða maður ræður sjálfur gjafafé sínu, þar með töldum dánargjöfum, nema gefandi hafi mælt fyrir á annan veg eða lög kveði sérstaklega öðruvísi á um. Ef maður hefur verið sviptur fjárræði ræður hann þó aðeins því gjafafé sem hann hefur fengið eftir að úrskurður gekk um sviptingu fjárræðis.
 4. Ófjárráða maður ræður einnig með sama hætti því fé sem lögráðamaður hans hefur látið hann hafa til ráðstöfunar.
 5. Ef um tiltölulega mikið sjálfsaflafé eða gjafafé er að tefla eða fari hinn ófjárráða ráðlauslega með féð getur yfirlögráðandi, án tillits til fyrirmæla gefanda, ef því er að skipta, tekið eða heimilað lögráðamanni að taka féð að nokkru eða öllu leyti til varðveislu og ræður hinn ófjárráða maður þá ekki því fé meðan sú ráðstöfun helst.
 6. Forráð ófjárráða manns yfir sjálfsaflafé og gjafafé taka einnig til arðs af því fé, svo og verðmætis er í stað þess kemur.
 7. Ákvæði þessarar greinar heimila hvorki ófjárráða manni að stofna til skulda né veðsetja þá fjármuni sem þau taka til.

Skylda lögráðamanna
Meginskylda lögráðamanna ófjárráða barna er að varðveita eignir hins ófjárráða tryggilega og gæta þess að þær séu ávaxtaðar eins og best verður á kosið á hverjum tíma. Lögráðamaður á sem sagt að hafa hagsmuni barnsins að leiðarljósi og haga störfum sínum í hans þágu. Lögráðamanni ber einnig að hafa samráð við hið ófjárráða barn um framkvæmd starfs síns eftir því sem aldur og þroski barnsins gefur tilefni til. Honum er þó heimilt að taka minniháttar ákvarðanir án sérstaks samráðs, t.d. þegar greiða þarf reikninga sem lögskylt er að greiða. Óheimilt er að ráðstafa fjármunum hins ófjárráða til að greiða kostnað af framfærslu hans, námi eða öðru án fyrirframfengins samþykkis sýslumanns. Lögráðamaður ber ábyrgð á þeim fjármunum barns sem hann hefur umráðarétt yfir samkvæmt lögræðislögum. Hann skal ávallt halda fjármunum barns aðskildum frá sínum eigin fjármunum. Ef lögráðamaður veldur ófjárráða barni tjóni með starfi sínu, hvort sem er af ásetningi eða gáleysi, ber honum að bæta það.

Hlutverk yfirlögráðenda
Sýslumenn eru yfirlögráðendur hver í sínu umdæmi. Hlutverk yfirlögráðenda er að hafa eftirlit með fjárhaldi lögráðamanna og er samþykki þeirra áskilið til ýmissa ráðstafana með fjármuni ófjárráða barna.

Ef verðmæti eigna barns fer yfir 500.000 kr. ber lögráðamanni að varðveita eignirnar og ávaxta að höfðu samráði við yfirlögráðanda og ber lögráðamanni að gefa yfirlögráðanda árlega skýrslu um ákvarðanir sem hafa verið teknar um slíkar eignir.  Öllum þeim sem inna af hendi fjárgreiðslur til lögráðamanns ófjárráða barns og greiðslan er eign hins ófjárráða, ber að tilkynna það yfirlögráðanda ef greiðslan er að fjárhæð 500.000 kr. eða þar yfir. Jafnframt ber lögráðamanni ófjárráða barns að tilkynna yfirlögráðanda ef barninu áskotnast verðmæti sem nemur 500.000 kr. eða þar yfir t.d. í formi gjafar, happdrættis eða með öðrum hætti.

Samþykki yfirlögráðanda þarf alltaf ef gengið er á eignir ófjárráða barns vegna framfærslu þess, náms eða annars. Er þetta í samræmi við þá reglu barnalaga að foreldrum eða öðrum þeim sem falin hefur verið forsjá barns beri ávallt skylda til að framfæra barnið.

Almennt er óheimilt að setja fjármuni ófjárráða barns sem tryggingu fyrir skuldbindingu eða láta ófjárráða barn gangast í ábyrgð eða setja tryggingu fyrir þriðja aðila. Yfirlögráðandi getur veitt undanþágu frá þessum reglum þegar sérstaklega stendur á vegna hagsmuna hins ófjárráða. Einnig er óheimilt að lána fé ófjárráða barns nema með leyfi yfirlögráðanda og þá gegn tryggu veði í fasteign.

Alltaf þarf samþykki yfirlögráðanda til að binda ófjárráða barn við kaup eða sölu ýmissa eigna, t.d. þegar ófjárráða barn kaupir eða selur fasteign eða bifreið. Sama gildir þegar ófjárráða barni eru afhentar slíkar eignir án endurgjalds.  Sjá nánar í kaflanum Kaup og sala barna á eignum.

Börn og fjármálastofnanir
Engar sérstakar reglur gilda um samskipti banka og fjármálastofnana við ófjárráða börn og unglinga aðrar en þær sem fram koma í lögræðislögum nr. 71/1997. Viðskipti barna við fjármálastofnanir eru því ekki andstæð lögum og einungis er gerð krafa um að slík viðskipti séu í samræmi við gildandi lög. Einhverjar fjármálastofnanir hafa þó sett sér verklagsreglur um meðferð fjármuna ófjárráða barna.

Innlánsreikningar
Eins og fram kemur í lögræðislögum ráða ófjárráða börn sjálf yfir sjálfsaflafé sínu, gjafafé og því fé sem lögráðamenn þeirra láta þeim í té. Ekki eru sett nein aldurstakmörk vegna þessara fjármuna. Það er því á valdi innlánastofnana sjálfra að ákveða við hvaða aldur börn geta stofnað innlánsreikninga án undirskriftar forráðamanna. Í dag miða flestar innlánastofnanir við að börn geti stofnað slíka reikninga af sjálfsdáðum þegar þau eru 11– 12 ára.

Mikilvægt er að þegar stofnaður er reikningur fyrir ófjárráða barn að jafnt viðskiptamenn sem og starfsmenn fjármálastofnunar þekki greinarmun á þeirri flokkun fjármuna sem lögin setja. Það verður að vera tryggt þegar ófjárráða barn stofnar reikning eða stofnaður er reikningur fyrir ófjárráða barn án vitundar forráðamanna að eingöngu sé um sjálfsafla- eða gjafafé að ræða. Jafnframt er mikilvægt að tryggja forráðamönnum aðgang að upplýsingum um stöðu á reikningum ófjárráða barna þannig að þeir geti fylgst með þeim fjármunum sem börnin hafa á milli handanna. Er þetta nauðsynlegt svo að lögráðamenn geti sinnt skyldum sínum sem ábyrgðarmenn með fjárhaldi barnanna þar til þau verða sjálf fjárráða.

Debetkort
Í raun er ekkert sem bannar það að bankar og fjármálafyrirtæki láti ófjárráða börn hafa debetkort í tengslum við innlánsreikninga þeirra þegar um er að ræða reikninga með sjálfsafla- eða gjafafé. Flestar bankastofnanir bjóða upp á annars vegar hraðbankakort, sem þá gilda einungis í hraðbönkum eða hjá gjaldkerum, og hins vegar almenn debetkort. Mjög misjafnt er hvort bankastofnanir hafa sett sér einhverjar reglur um hvernig kort börn geta fengið. Sums staðar er miðað við ákveðið aldurstakmark til þess að ófjárráða börn geti fengið almennt debetkort eða þá að gerð er krafa um samþykki forráðamanns fyrir slíku korti.

Þó svo að fjármálastofnunum sé í sjálfsvald sett hvort og þá hvernig reglur þær setja sér varðandi debetkort ófjárráða barna verður að gera þá kröfu til þeirra að kort sem afhent eru ófjárráða börnum séu svokölluð síhringikort, þ.e. að könnuð sé innstæða í hvert sinn sem kortið er notað. Því þótt ófjárráða börn megi ráðstafa sjálfsafla- og gjafafé sínu kemur skýrt fram í lögum að þeim er óheimilt að stofna til skulda og eiga því ekki að geta farið fram yfir á reikningum sínum.

Mega börn skulda?
Það kemur skýrt fram í lögræðislögum nr. 71/1997 að ófjárráða börnum er óheimilt að stofna til skulda, sbr. 7. mgr. 75. gr.  Eins kemur fram í 76. gr. laganna að löggerningar ófjárráða barna, sem þau hafa ekki heimild til að gera, binda þau ekki.

Einstaklingum og lögaðilum er því óheimilt að beina kröfu að ófjárráða barni til innheimtu skulda og fyrirtæki og stofnanir mega ekki eiga viðskipti við ófjárráða einstakling, sem felur í sér fjárhagslegar skuldbindingar fyrir hann, án samþykkis lögráðamanns. Það að fá samþykki lögráðamanns er ákveðin trygging fyrirtækisins fyrir greiðslu. Geri fyrirtækið hins vegar samning við ófjárráða barn, án samþykkis lögráðamanns, tekur það ákveðna áhættu af því að fá ekki greiðslu samkvæmt samningnum.

Hafa verður í huga að þótt meginreglur lögræðislaganna kveði á um að löggerningar ófjárráða bindi þá ekki eru viðurkenndar ákveðnar undantekningar frá þeim. Þá er jafnframt kveðið á um skilaskyldu, þ.e. hvor aðili um sig skal skila aftur þeim verðmætum sem hann hefur veitt viðtöku. Skal hinn ófjárráða greiða fégjald að því leyti sem verðmætin hafa orðið honum að notum. Þetta þarf alltaf að meta í hverju tilviki fyrir sig.

Samkvæmt lögræðislögum nr. 71/1997 er því t.d. óheimilt að barn undir 18 ára fái yfirdráttarheimild í banka, taki annars konar lán eða fái kreditkort. Eins er óheimilt að beina hvers kyns innheimtu að börnum undir 18 ára aldri, s.s. vegna innheimtu gjalda fyrir tómstundaiðkun, skólavist í framhaldsskóla o.s.frv.  Slíkir reikningar skulu alltaf vera stílaðir á forráðmann, sem hefur með undirskrift sinni samþykkt að greiða fyrir viðkomandi þjónustu, enda er greiðsla slíkra gjalda liður í framfærslu barnsins.

Kaup og sala barna á eignum
Eins og fram kemur í lögræðislögum nr. 71/1997 er meginreglan sú að ófjárráða einstaklingur má ekki stofna til skulda og því er almennt óheimilt að beina innheimtu að ófjárráða barni.  Í 69. gr. laganna er þó að finna undanþágu frá þessari meginreglu:

69.gr. Kaup og sala á eignum o.fl.
1. Samþykki yfirlögráðanda þarf til þess að binda ófjárráða mann við kaup eða sölu fasteignar, loftfars, skráningarskylds skips eða skráningarskylds ökutækis, svo og atvinnufyrirtækis hans. Sama gildir ef ófjárráða manni eru afhentar slíkar eignir án þess að endurgjald komi fyrir. Eignir samkvæmt þessari málsgrein skulu eigi látnar af hendi, nema hinum ófjárráða sé auðsjáanlega hagur að því.
2. Samþykki yfirlögráðanda þarf til þess að leigusamningur um fasteign ófjárráða manns sé gildur ef leigusamningur er til lengri tíma en þriggja ára, nema kveðið sé á um rétt til uppsagnar með hæfilegum fyrirvara.
3. Samþykki yfirlögráðanda þarf einnig til allra ráðstafana varðandi fjárhald ófjárráða manns sem eru mikils háttar eða óvenjulegar, miðað við efni hins ófjárráða, svo sem kaup eða sölu á lausafé, ef um tiltölulega mikið verðmæti er að tefla, og til ráðningar forstjóra fyrir atvinnufyrirtæki ófjárráða manns.
4. Dómsmálaráðherra getur sett nánari reglur um form og efni beiðna lögráðamanna um samþykki yfirlögráðenda samkvæmt þessari grein og um þau gögn sem beiðni skulu fylgja. 

Þar sem þetta er veigamikil undanþága á þeirri meginreglu laganna að ófjárráða börnum sé óheimilt að stofna til skulda óskaði embætti umboðsmanns barna eftir skýringum dómsmálaráðuneytisins (sem fer með túlkun lögræðislaganna) á ákveðnum álitaefnum er þetta varðar.  Óskað var skýringa á því hvaða réttaráhrif það hafi í för með sér þegar ófjárráða barn, einstaklingur yngri en 18 ára, fær heimild yfirlögráðanda (sýslumanns) til þess að kaupa/selja ökutæki eða fasteign.  Í svarbréfi frá dómsmálaráðuneytinu sem barst í apríl 2002 segir m.a.:

Skv. 1. mgr. 69. gr. lögræðislaga þarf samþykki yfirlögráðanda til þess að binda ófjárráða mann við kaup á skráningarskyldu ökutæki eða fasteign. Sama gildir ef ófjárráða er afhent slík eign án þess að endurgjald komi fyrir. Í greinargerð með 1. mgr. 69. gr. lögræðislaga segir: „þar sem margskonar skyldur hvíla á eigendum þeirra eigna sem tilgreindar eru í málsgreininni þykir rétt að yfirlögráðandi meti hvort hinn ófjárráða hafi hag af eignatilfærslunni og er því lagt til að samþykki hans þurfi til að koma þegar þannig hagar til."
Það er því ljóst að ekki er eingöngu verið að horfa til þess að hinn ófjárráða aðili geti staðið skil á því endurgjaldi sem fyrir ökutækið kemur heldur jafnframt til þess að þegar hinn ófjárráða aðili verður eigandi t.d. skráningarskylds ökutækis tekst hann á hendur ábyrgð á greiðslu þeirra lögboðnu gjalda sem krafist er af eiganda skráningarskylds ökutækis. Innheimtu lögboðinna gjalda verður því beint að hinum ófjárráða aðila, einnig þegar um er að ræða vanskil á lögboðnum gjöldum, nema hinn ófjárráða hafi sérstaklega verið undanþeginn greiðslu þeirra t.d. með yfirlýsingu lögráðamanns um að hann taki að sér greiðslu þessara gjalda fyrir hinn ófjárráða.

Eins og sést á ofangreindu verður innheimtu lögboðinna gjalda er hvíla á fasteign eða bifreið beint að ófjárráða barni, enda hafi sýslumaður samþykkt slíka eignatilfærslu. Ef eign er skráð á ófjárráða barn í veðmálabókum eða bifreiðaskrá má ætla að slíkt samþykki sýslumanns liggi fyrir.

Hvað er til ráða?
Til að koma skikk á fjármálin getur reynst nauðsynlegt að fá ráðgjöf sérfræðinga.  Ýmsir aðilar sinna fjármálaráðgjöf eða bjóða upp á fjármálanámskeið:

  • Félagsþjónusta sveitarfélaganna
    Á vegum sveitarfélaganna er veitt ýmiss konar félagsleg ráðgjöf (fjölskylduráðgjöf).  Hér er listi yfir öll sveitarfélög landsins.  Með því að smella á viðkomandi sveitarfélag er hægt að komast inn á heimasíðu viðkomandi sveitarfélags.
  • Þjónustumiðstöðvarnar í Reykjavík
    Á þjónustumiðstöðvunum er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar.  Þar er veitt ýmiss konar félagsleg ráðgjöf.  Nánar á www.reykjavik.is.
  • Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna
    Hægt er að komast í beint samband við ráðgjafa í gegnum Netspjall Ráðgjafarstofu.  Nánari upplýsingar er að finna á heimsíðunni www.fjolskylda.is.
  • Tótalráðgjöfin
    Tótalráðgjöfin er ætluð ungu fólki sem vantar aðstoð og ráðgjöf fagfólks til að leysa úr alls kyns vandamálum.  Hægt er að hringja í síma 520– 4600, koma (í Hitt húsið, Pósthússtræti í Reykjavík) eða senda tölvupóst.  Sérfræðingur í fjármálum svarar fyrirpurnum um fjármál sem berast Tótalráðgjöfinni.  Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.totalradgjof.is. 

Ábyrgð hinna fullorðnu
Það er fyrst og fremst á ábyrgð foreldra að kenna börnum sínum ábyrga meðferð fjármuna í samræmi við gildandi reglur laga og að gæta hagsmuna þeirra.  En þó svo að ábyrgð foreldra eða annarra lögráðamanna barna sé mjög rík er mikilvægt að þeir sem börn eiga viðskipti við, s.s. afgreiðslufólk og gjaldkerar, séu meðvitaðir um þær reglur sem gilda um ófjárráða börn og hagi störfum sínum í samræmi við þær.  Eins er þýðingarmikið að allir í samfélaginu standi með foreldrum í uppeldishlutverki þeirra og að skilaboðin sem börn fái séu samhljóma, þ.e. að umgangast beri fjármuni af virðingu og skynsemi.